![]() | ![]() ![]() | ||||
|
|
|
Vålerenga - Stutt kynning
Vålerenga, félagid frá bæjarhlutanum í austur Ósló, sem ber sama nafn, er stofnað 29. júlí árið 1913. Félagið, sem átti sína stórveldistíma á 7. og 9. áratugunum er enn á ný tilbúið til þáttöku í nýu evrópuævintýri. Á ferð sinni til sigurðsinns í bikarnum voru fleirri úrvalsdeildarlið lögð að velli. Brann var sigrað með þremur mörkum gegn engu. Sogndal með þremur mörkum gegn tveimur og Viking var sigrað í tveimur undanúrslitarleikjum með 4-1 á útivelli og 1-1 á heimavelli. Í , kannski þeim besta úrslitaleik nokkurn tímann í Noregi, bar Vålerenga sigur af hólmi gegn Strømgodset med fjórum mörkum gegn tveimur. Mörgum fannst eftirminnanlegasti leikurinn þegar við sigruðum Brann 3-0 á heimavelli okkar Bislett að viðstöddum átjánþúsund æstra áhorfenda, gegn erkióvinunum Brann, sem komst í 8 liða úrslitin í Evrópukeppni bikarhafa í fyrra. Vålerenga hefur ekki hafið núverandi leiktímabil eins vel og það síðastliðna. Í deildinni er liðið hættulega nálægt falli (4-3-12 í síðustu 19 leikjunum). Það er aðalega á útivelli liðinu skortir sigursæld. Í 9 útileikjum hefur liðið ekki fengið eitt einasta stig! Hvernig hefur svo gengið að verja bikartitilinn? Vegna þáttöku Noregs í HM fóru 14 bestu liðin beint í 3. umferð. Þar mætti liðið Skeid, erkióvinunum úr austur Ósló, sem féllu úr úrvalsdeildinni í fyrra og sem í mótsetningu við Vålerenga virðast ætla að eiga í erfiðleikum með að komast beint upp úr 1. deldinni í fyrstu tilraun. Vålerenga hafði 1-0 yfir í leikhlé, en í síðari hálfleik gerðist það ótrúlega að Skeid snéri leiknum og sigruðu 3-1 og bikarævntýrið var á enda áður enn það hafði eiginlega hafist. Þetta voru mikil vondbrigði eftir sigursældina í fyrra. Þó að Vålerenga leiki langt undir getu þessa dagana þýðir ekki að félagið ekki hafi snjalla leikmenn í búðum sínum. Miðvörðurinn Knut Henry Haraldsen og vinstri bakvörðurinn Hai Ngoc Tran voru báðir í landsliði Noregs skipað 23 ára leikmönnum og yngri, sem urðum í fjórða sæti í evrópukeppninni í Rúmenía í ár. Hinn ungi framverji John Carew átti frábært leiktímabil í 1997 og þrátt fyrir að hann hafi misst af meiginhluta þessa leiktímabils vegna veikinda hefur hann nú þegar vakið áhuga Liverpool. Vinnuhjarkurinn á miðjunni Bjørn Viljugrein er mjög mikilvægur fyrir liðið. Þegar hann leikur vel, leikur Vålerenga vel. Hann hefur verið mjög nálægt sæti í Norska landsliðinu en aðeins leikið einn leik eins og er. Fyrir 1998 leiktímabilið var hinn sænski framverji/miðvörður Pascal Simpson keyptur frá AIK Stockholm fyrir metkaupsummuna 65 milljónir íslenskra króna. Þrátt fyrir að meiðsli hafi háð honum og erfiðað honum að sýna sitt besta, er enginn efi um hans leiksnilld. Í 8 liða úrslitum í evrópukeppni bikarhafa í fyrra lék hann tvo meiriháttar leiki fyrir AIK gegn Barcelona og skoraði í 1-1 leiknum. Stuðningsmenn félagsinns eru "heimsþektir" í Noregi og eru fjölmennir og hávaðasamir mjög. Þeir nefna sig "Klanen". Meðan að þeir áður fyrr voru tengdir við skrýlslæti og óheppilegar uppákomur, hafa þeir síðastliðin 4-5 ár bara verið jákvæður stuðningur fyrir félagið. "Klanen" telur yfir 6.000 medlimi og eru það þrisvar sinnum meira enn næst stæðsti áhorfendaklúbbur Noregs! Fjölmargir hinna 6.000 stuðningsmanna félagsinns hlakka mikið til leikjanna í evrópukeppni bikarhafa í ár, en maður þarf ekki að óttast að þeir mæti allir á útileikina! Margir eru ungir og nýskráðir, þannig að þeim vantar menninguna sem gegnumsýrir áhangendur félagsinns, sem er að ferðast á sem flest mögulega útileiki liðsinns. Svolítið veltandi á frá hvaða landi andstæðingar okkar koma frá í ár, þorum við að lofa fjöri þegar Vålerenga kemur í heimsókn. Mætum við nágrönnum, mæta um 1.000 áhangendur. Mætum við hins vegar fjarlægum andstædingum er raunhæft að reikna með að um 100-200 stuðningsmenn ferðist með liðinu. Sem innskot má nefna að um það bil 50 stuðningsmenn fylgja liðinu á hverju ári á hinni árlegu æfingarferð, sem hefur venjulega verið lögð til Kýpur. Þegar Vålerenga leikur gegn Tromsø (1600 km frá Ósló) ferðast venjulega um það bil 100 stuðningsmenn með liðinu.
Óskar þú eftir meiri upplýsningum um félagið eða stuðningsmenn þess, sendir þú e-póst til okkar á netfang info@vpn.no
Translated by: Jonas Rafnar Ingason (ingason@online.no)
|
|
|
|
|
|
© VPN 1998 - info@vpn.no |
||||